„Ég biðst fyrirfram afsökunar á orðbragðinu. Hvers konar helvítis bull er þetta eiginlega. Hvað var þá fyrri fjármálaáætlun? Slæm nýting á fjármunum? Þessi drasl fjármálaráðherra má vinsamlegast hætta að úða út svona fokking bulli.“
Svona byrjar Facebook færsla Björns Levís Gunnarssonar, þingmanns Pírata, sem hann skrifar í kvöld um nýju fjármálaáætlun sem Bjarni Benidiktsson, fjármálaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi. Björn segir í meðal annars í færslu sinni að fjármálaráðherra verði að segja satt og rétt frá í sinni eigin áætlun.
„Það á til dæmis að efla skattaeftirlit sem á að skila meiri tekjum. Það eina sem það segir mér er að fyrri áætlun hafi verið sett fram með ívilnunum fyrir skattsvikara. Það er ekki fyrr en herðir í ári að þessi fjármálaráðherra neyðist til þess að ganga á þær ívilnanir ... það verður samt að skerða tilfærslukerfi almannatrygginga líka. Þetta er ekki heiðarleg framsetning hjá ráðherra sem ber að segja satt og rétt frá.“
Björn Leví bendir einnig á tvískinnunginn í sjálfri fjármálaáætlunni.
„Það á að hækka skatta á heimili í \"svokallaða\" græna skatta. Bæta við urðu árgjaldi á heimilissorp sem getur svo sem verið ágætt en samtímis eru framlög til umhverfismála minnka.“
Að lokum segir Björn Leví að orðbragð hans sé alveg viðeigandi og alveg eðlileg.
„Já, það fýkur í mig þegar ráðherra bullar svona og mér finnst bara fullkomlega eðlilegt að tjá þá tilfinningu með viðeigandi orðum til þess að fólk skilji hversu alvarlegt mér finnst þetta vera.“
Björn Leví er ekki fyrsti þingmaðurinn sem gagnrýnir fjármálaætlun fjármálaráðherra. Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í gær að hann væri í áfalli vegna breytinganna og að margt hafi komið þar á óvart.