Björn leví hættir líka

Björn Leví Gunnarsson þingmaður er hættur í stjórn þingflokks Pírata. Hann fer sömu leið og Ásta Guðrún Helgadóttir sem hættir sem þingflokksformaður.

Rúv segir frá brotthvarfi Björns Levís úr stjórninni. Einnig því að Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, gagnrýndi þingmenn Pírata fyrir að víkja af fundi fastanefnda Alþingis „til að ræða forystukrísu“ í þingflokknum, eins og það er orðað í frétt Rúv.