Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir að hann hafi þurft að jafna sig eftir lestur á fréttum Stundarinnar og Kjarnans um að lögmaður Samherja og almannatengill hafi haft aðkomu að skrifum skipstjórans Páls Steingrímssonar um Samherjamálið og blaðamenn.
Björn Leví gerir eftirfarandi setningu að umfjöllunarefni:
„Í nóvember var Þorbjörn kominn til starfa fyrir Samherja. Margrét Ólafsdóttir kynnti hann með eftirfarandi hætti í tölvupósti: „Til uppl. Þorbjörn er okkar PR ráðgjafi.“"
Björn Leví segir á Facebook að þetta sé ónákvæmt að hans mati. „Þarna er verið að ráða siðleysisráðgjafa. Einhvern sem kemur inn í gersamlega rotið umhverfi bara til þess að reyna að snúa almenningsáliti - algerlega óháð því hvað er satt og rétt í málinu,“ segir hann.
„Þegar utanaðkomandi fólk kemur inn í svona mál og ætti að sjá lögleysuna sem er í gangi - enda með menntunina til þess - ætti að koma því til skila til þar til bærra yfirvalda. Ekki satt? Nei, í staðinn er farið í mann[m]orðsherferð. Ekkert er heilagt og allt er vopn.“
Björn vill að allt sé viðurkennt:
„Ég er á því að það hefði verið best fyrir alla að viðurkenna allt, opinbera allt - því heiðarleikinn hreinsar. Við þurfum að taka saman ákvörðun um að hafna svona verkum í einu og öllu.“
Samherjamenn hafa ekki viljað tjá sig, mun innbrot í tölvu hafa verið kært til lögreglu á Akureyri. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, segir í athugasemd á Facebook:
„Mér finnst magnað, að Kjarninn skuli birta skjöl, sem eru augljóslega stolin, fengin með því að brjótast inn í tölvu einhvers.“