Á Alþingi í dag endurtók Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, nákvæmlega sömu setningu og þá sem Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, var dæmd brotleg fyrir hjá siðanefnd Alþingis í síðustu viku. Í fyrra gagnrýndu þau bæði Ásmund Friðriksson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, fyrir akstursgreiðslur sem hann þáði frá Alþingi vegna aksturs eigin bifreiðar. Mbl.is greinir frá.
Líkt og kom fram í viðtali við Björn Leví og Helgu Völu Helgadóttur, þingmann Samfylkingarinnar, í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gær, er Björn Leví friðhelgur gagnvart siðanefndinni þar sem hann lét orðin falla í pontu á þingi, ólíkt Þórhildi Sunnu sem lét þau falla í Silfrinu á RÚV þann 25. febrúar 2018. Því virðist sem Björn Leví hafi ákveðið að láta á það reyna að segja það nákvæmlega sama og Þórhildur Sunna gerði og benda með því á hversu skökku það skjóti við.
„Ég nota nú orð sem allir skilja og þar á meðal siðanefnd: Nú er rökstuddur grunur um það að Ásmundur Friðriksson hafi dregið að sér fé, almannafé, og við erum ekki að sjá viðbrögð þess efnis að verið sé að setja á fót rannsókn á þeim efnum,“ sagði Björn Leví í ræðu sinni.
Þórhildur Sunna var ávítuð af siðanefndinni fyrir þessi sömu orð en Björn Leví var ekki talinn brjóta gegn reglum nefndarinnar þrátt fyrir að hafa, um svipað leyti og Þórhildur Sunna lét orð sín falla, sagt að um fjársvik væri að ræða hjá Ásmundi. Ásmundur kvartaði undan ummælum beggja til siðanefndar á sínum tíma.
Í ræðu sinni á Alþingi í dag bætti Björn Leví við: „Ég segi þessi orð með fullri vitneskju um að þau hafi verið dæmd sem brot á siðareglum þingmanna. Við vitum það hins vegar öll hérna inni, að þau eru sönn. Fyrir því liggur játning og staðfesting í frávísun forsætisnefndar. Þess vegna er þetta rökstuddur grunur í allri merkingu þeirra orða. Ef við getum gerst brotleg við siðareglur fyrir að segja sannleikann, þá er voðinn vís.“
Steingrímur J. Sigfússon, forseti þingsins, var ekki ánægður með framkomu Björns Leví og sagði hann fara ósæmilegum orðum um Ásmund. „Forsetinn telur þessa notkun dagskrárliðarins ekki við hæfi,“ sagði Steingrímur og vísaði til dagskrárliðarins „störf þingsins,“ hvar Björn Leví tók til máls.