Björn Leví ekki bjartsýnn á vegferð ríkisstjórnarinnar: „Held hún endi út í skurði“

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, er ekki bjartsýnn á vegferð ríkisstjórnarinnar er varða samgönguskatta. „ Held að hún endi út í skurði enn og aft­ur.“

Þetta má lesa í nýjasta pistli Björns Leví sem birtist í Morgunblaðinu í morgun.

„Ný­lega kynnti innviðaráðherra áform um gjald­töku í öll­um jarðgöng­um lands­ins ásamt „ann­ars­kon­ar gjald­töku“ þar sem eldsneyt­is­gjald úr­eld­ist fyrr en síðar. Í staðinn eiga að koma „ein­hvers­kon­ar notk­un­ar­gjöld“,“ segir Björn Leví. Hann segist ekki sjá hvernig ríkisstjórnin ætli að láta dæmið ganga upp.

Meira þurfi að gera fyrir málaflokkinn og að betri heildarsýn þurfi í samgöngumálum. „ Ekki bara fyr­ir bíla, held­ur einnig fyr­ir fót­gang­andi, hjólandi, fljúg­andi, siglandi, synd­andi og hvað annað sem fólki dett­ur í hug að nota sem sam­göngu­máta,“ segir Björn Leví meðal annars og heldur áfram:

„ Þegar við erum eins sam­mála og við get­um orðið um heild­ar­sýn­ina þá þurf­um við að ákveða hversu mikið við ætl­um að vinna að þeirri heild­ar­sýn í einu. Fyrst þá vit­um við hversu mikl­ar tekj­ur við þurf­um að afla til þess að ná þeim mark­miðum.“

Björn Leví segir það skipta máli hvernig teknanna er aflað og að sátt þurfi að ríkja um það.

„Ef rík­is­stjórn­in ætl­ar bara að pukra um það úti í sínu horni, sín á milli, þá mun það aldrei skila al­menn­um ár­angri. Til dæm­is hef­ur aldrei verið sátt um að setja veg­gjöld á öll jarðgöng í land­inu og síðast þegar það var rætt fór rík­is­stjórn­in und­an í flæm­ingi með að kannski væri eðli­legt að und­an­skilja ein­hver göm­ul jarðgöng og einnig jarðgöng sem sam­eina byggðar­kjarna. Nú er aft­ur sagt „öll­um göng­um“ og að gjaldið „sé nokkuð hátt, en samt hóf­legt“,“ segir Björn Leví sem er ekki bjartsýnn.

Hægt er að lesa pistilinn í heild sinni hér.