Í liði forsætisráðherrans eða ekki? nefnist nýútkomin bók eftir Björn Jón Bragason sagnfræðing og lögfræðing. Bókin greinir frá merkilegum rannsóknum Björns Jóns á því sem gerðist að tjaldabaki í viðskiptalífinu og á vettvangi stjórnmála þegar íslenska bankakerfið var stokkað upp í kringum aldamótin.
Björn Jón hefur unnið að þessari bók í nokkur ár og rannsakað bakgrunn atburða meðal annars með því að taka fjölda viðtala við þá sem komu við sögu og voru á vettvangi atburða. Í bókinni eru 440 tilvitnanir í gögn og viðtöl sem sýnir hve vönduð og yfirgripsmikil rannsóknarvinnan að baki bókarinnar er. Björn Jón Bragason hefur ritað nokkrar athyglisverðar bækur á undanförnum árum, þar á meðal eru bækurnar Bylting og hvað svo? og Gjaldeyriseftirlitið. Vald án eftirlits?
Í bókinni er mikið fjallað um svonefndan Orca-hóp sem keypti ráðandi hlut í FBA-bankanum sem síðar sameinaðist Íslandsbanka. Samstarf þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Eyjólfs Sveinssonar, Jóns Ólafssonar og Þorsteins Más Baldvinssonar hristi verulega upp í viðskiptalífinu og skók reykmettuð bakherbergi stjórnmálanna. Æðstu menn ríkisstjórnarinnar höfðu ætlað allt öðrum fjárfestum að eignast FBA en réðu ekki við snilldarleiki fjórmenningana sem allir voru margreyndir úr viðskiptum og samningagerð.
Óhætt er að segja að rannsóknir Björns Jóns sem birtast í bókinni varpi nýju ljósi á þau miklu átök sem voru að tjaldabaki um yfirráð yfir íslenskum bönkum. Einnig er fjallað um fjármálakerfið í aðdraganda hrunsins og birtar nýjar upplýsingar sem varpa ljósi á atburði sem gætu hafa ýtt bankahruninu af stað þegar hefndarhugur bjó að baki.
Í liði forsætisráðherrans eða ekki? sver sig í ætt við alþjóðlegar bækur um samtímaviðburði sem byggja á alvörurannsóknum.
Björn Jón Bragason er kominn í hóp allra öflugustu rithöfunda landsins. Hann nýtur góðs af þeim menntunarbakgrunni sem hann hefur sem bæði sagnfræðingur og lögfræðingur.