Björn ingi kaupir bæjarblöðin

Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi borgarfulltræui Framsóknarflokksins í Reykjavík og núverandi eigandi Vefpressunar hefur keypt fjölda bæjarblaða af Ámunda Ámundasyni blaðaútgefanda til fjölmargra ára.
 
Meðal blaðanna eru Reykjavík vikublað, Akureyri vikublað og blöðin Hafnarfjörður, Kópavogur og Vestfirðir. Vefpressan á fyrir DV og vefmiðluna Pressuna, Eyjuna og Bleikt.
 
Ekki stendur til að hætta útgáfu þeirra tólf blaða sem útgáfufélag Ámunda, Fótspor hefur gefið út um nokkurra árabil, að því er fram kemur í tölvupósti frá Birni Inga Hrafnssyni, stjórnarformanni og útgefanda Vefpressunnar.