Björn Ingi Hrafnsson, fjölmiðlamaður hjá Viljanum, er um þessar mundir staddur í borginni Lvív í vesturhluta Úkraínu þar sem hann fylgist með stríði Rússa og Úkraínumanna.
Rússar létu sprengjum rigna á borgina í gær, þar á meðal á olíutanka, en lífið gengur þó enn sinn vanagang í Lvív.
Björn Ingi setti inn færslu á Facebook í dag þar sem hann sagði borgarbúa vera að ná sér eftir sprengjuárásir gærdagsins.
„Hefðbundinn en hrollkaldur sunnudagur. Borgarbúar enn að melta sprengjuárásir gærdagsins. Voru þær utan dagskrár til þess að senda Biden Bandaríkjaforseta skilaboð þar sem hann var rétt hinumegin landamæranna eða ætla
Rússar nú að beina sprengjuoddum sínum í auknum mæli að vesturhlutanum þar sem víst er að birgðir koma inn í landið, þ.m.t. vopn?“
Að sögn Björns Inga munu næstu dagar skera úr um framhaldið og ætla margir Úkraínumenn sem hafa dokað í Lvív sér nú að forða sér úr landi áður en það verður um seinan.
„Eins og venjulega ypptir fólk öxlum og segir: Pútín er sá eini sem veit hvað gerist næst. Hann ræður þessu,“ skrifar hann.