Björn H. Halldórsson rekinn

Björn H. Halldórsson sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri Sorpu bs. hefur verið sagt upp störfum. Var ákvörðunin tekin á stjórnarfundi SORPU bs. í dag. Björn fær sex mánaða uppsagnarfrest samkvæmt ráðningarsamningi. Þessi ákvörðun á sér m.a. stoð í nýlegri skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um stjórnarhætti og áætlunargerð vegna gas- og jarðgerðarstöðvar þar sem m.a. voru gerðar alvarlegar athugasemdir við störf og upplýsingagjöf framkvæmdastjóra og gerð kostnaðaráætlana. Björn hafði áður sent frá sér yfir­lýsingu vegna skýrslu Innri endur­skoðunar um mál Sorpu. Hann sagði skýrsluna ein­kennast af röngum ó­traustum og sam­hengis­lausum á­lyktunum um for­sendur og gæði starfa hans.

Þá sagðist Björn hafna þeim á­virðingum sem á hann voru bornar í skýrslunni og sagði: „Sem reyndar er ekki innri endur­skoðandi SORPU og þekkir tak­markað til fyrir­tækisins eða starfs­um­hverfis og starfa minna.“

Því næst tók Björn fram að skýrslan ein­kenndist af röngum, ó­traustum og sam­hengis­lausum á­lyktunum um for­sendur og gæði starfa hans.

„Við gerð skýrslunnar hafa t.d. verið dregnar veiga­miklar á­lyktanir af skjölum sem aldrei hafa komið fyrir sjónir mínar. Sýnir það, eitt og sér, hversu ó­á­reiðan­leg skýrslan er.“

Í tilkynningu frá stjórn Sorpu segir enn fremur:

„Að fengnum andmælum framkvæmdastjórans við efni skýrslunnar var ákveðið að veita honum áminningu í samræmi við ákvæði kjarasamnings og gefa honum kost á frekari skýringum og athugasemdum. Að þeim fengnum og í ljósi annarra aðstæðna var tekin ákvörðun um uppsögn.“

Þá var ákveðið á stjórnarfundinum að ráða Dr. Helga Þór Ingason, prófessor við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, tímabundið í starf framkvæmdastjóra SORPU bs. Í tilkynningunni segir enn fremur:

„Helgi Þór er einnig forstöðumaður MPM náms - meistaranáms í verkefnastjórnun - við HR. Rannsóknir Helga Þórs og kennsla á framhalds- og grunnstigum háskóla hafa einkum snúist um verkefna- og gæðastjórnun. Helgi Þór var ráðinn tímabundið sem forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur á árunum 2010-2011.“

Þá segir einnig:

Stjórn SORPU bs. mun ásamt Helga Þór og starfsmönnum SORPU bs. vinna að endurskipulagningu rekstrar fyrirtækisins með sjálfbærni, umhverfisvernd og samfélagslega þjónustu að leiðarljósi.