Björn æfur út í reykjavíkurblaðið

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, fer hörðum orðum um Reykjavíkurblaðið í nýjum pistli, vegna umfjöllunar um Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðiflokksins í því. Reykjavíkurblaðið er gefið út af félaginu Fótspor sem er í eigu Ámunda Ámundasonar. Ritstjóri blaðsins er þekktur blaðamaður, Thor Fanndal.

Á forsíðu blaðsins er mynd af Bjarna og fyrirsögnin „Rangtúlkar ítrekað opinber gögn“. Umfjöllun er síðan um Bjarna á bls. 2 og er tilefnið orð sem Bjarni lét falla í Kryddsíldinni á Stöð 2 á gamlársdag, þess efnis að aðeins 1% starfi á lágmarkstaxta. Vísaði Bjarni þar til gagna frá Hagstofu Íslands. Reykjavíkurblaðið bendir á að þau gögn miði við heildarlaun en ekki lágmarkstaxta. Því sé ályktun fjármálaráðherra röng. Í greininni er síðan farið yfir nokkur önnur tilvik þar sem því er haldið fram að Bjarni rangtúlki opinber gögn. Er Bjarni sakaður um að segja rangt um niðurstöðu aflandsskýrslu og að röng mynd sé dregin upp af fjármálum Íslandspósts á vef Fjármálaráðuneytisins í grein í haust.

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2019/01/06/bjorn-aefur-ut-reykjavikurbladid-gefid-ut-til-ad-koma-hoggi-bjarna-benediktsson-og-sjalfstaedisflokkinn/