Björk Vilhelmsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi sem gerði svo að segja allt vitlaust í nýliðinni viku með tillögu sinni um að sniðganga vörur sem framleiddar eru á hernámssvæðum Ísraela var gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld.
Sniðgöngutillagan var ekki það eina sem skók samfélagið í síðustu viku heldur og ummæli Bjarkar um velferðarkerfið sem hún segir vera þeirrar náttúru að alltof margir, sem geti unnið á vinnumarkaði, ílengist í því og festist þar í viðjum vanans - og fátæktar.
Björk sagði sögu sína hispurslaust í þættinum, en sjálf þurfti hún að takast á við sína andlegu erfiðleika allt frá unglingsárum á Blönduósi þar sem hún fann sig engan veginn innan skólakerfisins og glímdi við þunglyndi fram eftir aldri, en einkar athyglisvert var að heyra hana lýsa unglingsárum sínum og þeim erfiðleikum sem hún mætti. Og þar hafi hún einmitt staðið frammi fyrir þeim valkosti að draga sængina upp fyrir haus eða taka á sig rögg og horfast í augu við veruleikann. Hún hefði hæglega getað endað sem kúnni velferðarþjónustunnar til áratuga ef hún hefði ekki þorað að kannast við sig og gefa sjálfri sér inn. Það sé einmitt oft og tíðum auðveldari kostur að vorkenna sjálfum sér en að gefa sér spark í rassinn; það þekki hún svo sannarlega úrr sínu lífi.
Hún sagði áhorfendum frá ástinni í lífi sínu, Sveini Rúnari Haukssyni lækni, sem hún kynntist þegar hún var 23ja ára en hann rétt að verða fertugur, þá búinn að draga sinn djöful í vænisýki og þunglyndi, en þau hafi smollið saman eins og haganlega skorin púsl - og séu í reynd ennþá í tilhugalífinu.
Björk hefur nú yfirgefið pólitíkina og ætlar að dvelja við hjálparstörgf í Palestínu fram á næsta ár að hún hverfur aftur til fyrri starfa sinna sem félagsráðgjafi sem hún sinnti einmitt áður en hún byrjaði í borgarstjórn árið 2002.
Þessi mikli örlagavaldur í pólitískri umræðu síðustu daga dregur ekkert undan í viðtalinu í kvöld sem er berort og opinskátt í meira lagi.
Mannamál er hægt að nálgast í heild sinni eða að hluta á hringbraut.is, en þátturinn er einnig endursýndur í dag, mánudag á Hringbraut.