Norræna ráðherranefndin ætlar að fjármagna tilraunaverkefni til að þróa tónvísindasmiðjur Biophiliu Bjarkar og fer Reykjavík fer með forystu í þessu samnorræna verkefni. Þátttökuborgir eru Sisimiut á Grænlandi, Stavanger í Noregi, Þórshöfn í Færeyjum, Álaborg í Danmörku, Maríuhöfn á Álandseyjum, Sundsvall í Svíþjóð og Grankulla/Helsinki í Finnlandi.
Þrjú ár eru liðin síðan Björk kynnti verkefnið fyrir reykvískum grunnskólum og var inntak þess ný tækni og áherslur í tónlistarsköpun og náttúruvísindum. Með norrænum fjárstuðningi verður gefið út ítarlegt námsefni sem styður enn frekar við kennslutilhögun í tónvísindasmiðjum. Þar er haldið til haga því besta úr kennslureynslunni í Reykjavík.
Biophilia byggist á því að nota sköpun sem menntunar- og rannsóknaraðferð þar sem náttúruvísindi, tónlist og tækni eru tengd saman í nýstárlegu sköpunarferli. Verkefnið grundvallast á víðtæku samstarfi fræðimanna, vísindamanna, listamanna, kennara og nemenda á öllum skólastigum.