Það er RÚV sem hefur þetta eftir tónlistarkonunni í tilefni af því að Náttúruverndarhreyfingin, útivistarsamtök og Samtök ferðaþjónustunnar undirrituðu í gærdag viljayfirlýsingu um stofnun þjóðgarðs.
Björk var á staðnum: \"Mér finnst við alltaf hafa haft þjóðgarð á hálendinu. Þetta er í raun og veru spurning um að skilgreina það, sem getur stundum verið svolítið sorglegt og svolítil mótsögn, af því það sem það sem manni finnst mest sjarmerandi við hálendið er hvað það er óskilgreint. Þetta er mikið óbyggð og víðátta.“ segir Björk við RÚV.
Hún segir að skilgreina verði hálendið sem þjóðgarð til að vernda það og sýna fram á, eins og gert hafi verið í Finnlandi og í Yellowstone þjóðgarðinum í Bandaríkjunum, að hægt sé að græða meira með því að fara þessa leið heldur en fengist með virkjunum.