Björk Guðmundsdóttir, söngkona, og Andri Snær Magnason, rithöfundur hafa skorið upp herör gegn stóriðjustefnu stjórnvaldar og áformum þeirra um lagningu sæstrengs milli Íslands og Bretlands.
Frá þessu greindu þau á blaðamannafundi í Gamla bíói í hádeginu í gær þar sem þau sögðust ætla að nota tónlistarhátíðina Iceland Airwaves til að leiða erlendum blaðamönnum það fyrir sjónir hvaða afleiðingar stefna ríkjandi stjórnvalda hefði fyrir náttúru Íslands.
Á fundinum fóru þau yfir helstu áherslur náttúruverndarhópsins Gætum garðsins sem í samstarfi við Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands ætla að útskýra hvað felst í því ef sæstrengur milli Bretlands og Íslands verður lagður.
Björk skaut föstum skotum á ríkisstjórnina á blaðamannafundinum þar sem heimsbyggðin var beðin um stuðning gegn stefnu stóriðjustefnu hennar, en þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún gagnrýnir núverandi ríkisstjórn; á fundi fyrir ári sagði hún núverandi stjórnvöld vera með úrelt gildi.
Hún birti síðar yfirlýsingu á twitter-síðu sinni þar sem hún ítrekaði beiðni sína um að heimsbyggðin sýndi stuðning sinn í verki gegn ríkisstjórninni og áformum hennar.