Björk og gunni: lyktarskynið, maður!

Hann var bæði fjörlegur og hláturmildur þátturinn Lóa og Lífið sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld, en gestir Lóu að þessu sinni voru leikarahjónin Björk Jakobsdóttir og Gunnar Helgason sem fjölluðu af sinni kúnst um vináttuna í hjónabandinu svo eftir var tekið.

Eins og sjá má í þætti gærkvöldsins, sem finna má hér á vef stöðvarinnar, var vægast sagt fjörlegt yfirbragð yfir honum, en þau hjónin unnið mikið saman og má segja að þau séu Vesturport níunda áratugsins, enda stofnunðu þau Hafnafjarðaleikhúsið og stóðu þar vaktina í yfir 10 ár.  

Á farsælum ferli hafa þau leikið, leikstýrt og skrifað og margt á daga þeirra drifið sem þau segja frá á afar líflegan hátt. Einlæg en um leið lifandi og afar skemmtileg segja þau frá sögum frá Rússlandi þegar þau voru þar við leikstjórn og hvernig það er að vera hjón í bransanum.  

Mikið var um skemmtilegar sögur svo sem af því hvernig lyktarskynið hafði aðdróttaafl í tilhugalífinu, hvernig þau hjálpa hvert öðru í gegnum erfiðu tímabilin, þegar rússneski leikhússtjórinn var lamin af kærustunni og hvernig það er að vera einn á hjara veralda að leikstýra á ókunnugu tungumáli. Svo mikið var helgið að Lóa tók bakföll af hlátri og skemmti sér stórkostlega sem fór ekki framhjá áhorfendum

Látið ekki þennan upplífgandi og skemmtilega þátt fara framhjá ykkur, hvort heldur er í klippum, í heild sinni á vefnum eða í endurýningu í dag og um helgina á Hringbraut.