Söngkonan Björk er á nýjum lista stórtímaritsins Time yfir 100 áhrifamestu menn samtímans í heiminum í ár. Í umsögn sinni um íslenska tónlistarmanninn segja blaðamenn Time að Björk sé ávallt á jaðrinum og falli aldrei í skuggann af öðru listafólki. Hún hafi ávallt tamið sér nýjustu tækni og aðferðir til að koma nýjum kynslóðum á óvart með verkum sínum og fylgi í reynd straumi tíðarandans og geti með þeim hætti ávallt endurnýjað sig. Þetta eigi hvort heldur við um tónlist söngkonunnar, hljóðmynd hennar, myndbönd, framkomu, klæðnað og útlit. Hún bjóði alltaf upp á sinn eigin heim og fari aldrei í föt annarra.
Björk segist í tilefni valsins vart skilja af hverju fólk hafi enn þá áhuga á henni sem skapandi listamanni af því hún sé búin að vera svo lengi að í bransanum. Það komi henni sífellt á óvart á seinni árum hvað hún njóti enn mikils og góðs hljómgrunns á meðal fólks.