Björk hættir í borgarstjórn

Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík ætlar að biðjast lausnar á næsta fundi borgarstjórnar og snúa sér að sjálfboðavinnu í Palestínu uns hún hyggst hefja að nýju störf sem féllagsráðgjafi.

Björk segist í ítarlegu viðtali í Fréttablaðinu í dag að ástæða þessara umskipta sé tiltölulega einföld; hún líti svo á að sér hafi mistekist við að færa velferðarráð til betri vegar, alltof mikið af vinnufæru ungu fólki sé upp á kerfið komið, í störfum sínum hafi henni ekki tekist að snúa þeirri þróun við. Hún segir við blaðið að velferðarkerfið í borginni einkennist af veikleikavæðingu.

Björk var fyrst kosin í borgarstjórn árið 2002 og hefur lengst af sinnt velferðarmálum innan borgarinnar: \"Mér finnst minn tími vera kominn,\" segir hún í viðtalinu í Fréttablaðinu í morgun og bætir við: \"Ég finn að ég er búin að segja það í borgarstjórn sem mig langar að segja og berjast fyrir því sem ég vildi berjast fyrir,\" segir hún.

Hún hefur barist fyrir því að skilyrða fjárhagsaðstoð í velferðarkerfinu á þann veg að þar sé að finna hvata hjá fólki til að fara út í atvinnulífið fremur en að ánetjast kerfinu sjálfu. Henni sýnist svo sem þar hafi hún ekki haft erindi sem erfiði, kerfið sjálft letji fólk til starfa: \"... fólk sem er lengi á fjárhagsaðstoð festist í svona fátæktargildru,\" segir Björk.