Björk guðmunds yrði frábær forseti

Leitin að fleiri frambjóðendum til forseta Íslands stendur enn yfir. Almannatenglar telja að á næstu 3-4 vikum muni endanlega skýrast hverjir muni berjast um Bessastaði. Vonir allmargra Íslendinga slokknuðu fyrir skemmstu þegar bæði Salvör Nordal og Katrín Jakobsdóttir tóku af öll tvímæli með að þær myndu bjóða sig fram. Báðar höfðu skorað hátt í könnunum. Marga fýsir að fá konu á Bessastaði og Halla Tómasdóttir meldaði sig til leiks í baráttunni í vikunni og nýtur nokkurs stuðnings. En hvaða kona væri líklegust af þeim sem ekki hafa sagt nei til að verða frábær forseti? Hvað með Björk Guðmundsdóttur söngkonu?

Hallgrímur Óskarsson hjá ráðgjafarfyrirtækinu Verdicta hefur sett saman líkan sem mælir styrkleika og veikleika forsetaframbjóðanda. Hann brást við beiðni Hringbrautar um að taka frekari þátt í samkvæmisleik þjóðarinnar - sem þó er undirskotinn rammri alvöru og greindi Björk sem frambjóðanda samkvæmt líkani sem hann hefur sjálfur unnið og styðst þar við fjóra þætti:

Að vera sympatísk
Yrði Björk sympatískur frambjóðandi?
\"Að vera sympatískur er að eiga auðvelt með að ná tengingu við fólk og að hafa þá meðfæddu gáfu að tala á einlægan hátt þannig að fólk vill heyra meira. Þetta er bæði það að vera viðkunnanlegur en einnig sá eiginleiki að tengjast fólki og setja hlutina í samhengi við aðra en hugsa og tala minna út frá sjálfum sér. Að vera sjarmerandi í tali, fasi og framkomu,\" segir Hallgrímur.
\"Vigdís Finnbogadóttir er rík af sympatíu og er því klassískt vinsæl og alltaf vinsæl og eftirsótt. Og ef við nefnum af handahófi aðra þekkta manneskju úr samtímanum þá mætti nefna söngkonuna Sölku Sól. Hún nær til fólks og er vinsæl vegna þess að hún er sympatísk og kann að tengjast fólki án þess að halda langar ræður, aðeins með því að segja nokkur orð, brosa og senda frá sér útgeislun. Þannig virkar sympatía, eiginleikinn er skynjaður sem útgeislun á þennan óræða hátt sem sympatían er,\" segir Hallgrímur. Að lokinni skýringu sinni telur hann Björk skora hátt á sympatíska rófinu.


Innhverf og úthverf sympatía
\"Björk Guðmundsdóttir er mjög sympatísk en ekki á hefðbundinn hátt heldur á innhverfan hátt. Það er nefnilega til bæði innhverf og úthverf sympatía. Salka Sól er úthverf en Björk er innhverf. Björk nær samt sem áður mjög vel til fólks og er viðkunnanleg þótt hún sé ekki alltaf að opna á tengingar við fólk. Sumir skynja Björk eilítið undarlega en á sama tíma er hún segull og allir hlusta með andakt þegar hún talar, meira að segja þeir sem hafa andstæðar skoðanir. Þess vegna nær hún mjög vel til fólks bæði í krafti frægðar en einnig vegna þess að karakter hennar er afar áhugaverður og fólk leggur við eyrun þegar hún talar. Björk er því mjög sympatísk en á sinn eigin hátt og með sínu sniði og nefi. Annað einkenni sem sympatískt fólk hefur er að gera lítið að því að fegra eigin ímynd að tilhæfulausu. Björk er þannig, hún vill helst ekki beina of mikilli athygli að sér þó hún fái yfirleitt alltaf mikla athygli; hún er hófsöm, kurteis og stundum allt að því lítillát.\"

Umhverfis- og náttúruvernd
Björk fær því hæstu einkunn hjá Hallgrími í sympatíunni ef henni skyldi hafa dottið í hug að bjóða sig fram. En hvað með þátt tvö í líkani Hallgríms, Gáfur, reynslu og þungavigt?
\"Þátttaka Bjarkar í umhverfismálum og náttúruvernd gefur henni mikilvæga þungavigt og sýnir fólki að hún er ekki bara góð á sviði sínu sem söngkona heldur einnig á öðrum sviðum sem skipta fólk máli. Björk er annt um sömu hluti og almenningi og það eflir tengingu hennar við fólk. Árangur hennar að tengja sig og ná til annarra á alþjóðavísu gefur Björk feykimikla þungavigt og gefur fólki mikla trú á að Björk hafi næga reynslu til að takast á við flóknustu mál sem geta rekið á fjörur þess sem skipar embætti Forseta Íslands. Tengsl við þekkt fólk, bæði utan og innan tónlistar sýna mikla þungavigt og er dæmi um það sýnilegur áhugi og spenningur af hálfu Davids Attenborough þegar hann spjallaði við hana í sjónvarpsþætti í vetur. Ekki ósvipað og þegar Adele gaf út nýtt lag, þá var David til í að sprella með Adele. Báðar eru með næga þungavigt til að fanga áhuga hins goðsagnakennda manns. Reynsla Bjarkar í að eiga samskipti við fólk á alþjóðlegum grunni er því mikil og sannfærir fólk um að hún hafi næga andlega burði til að takast af fullum þunga á við verkefni embættis Forseta Íslands.\"


Glæsileg á einstakan hátt
Þriðja atriðið í greiningu Hallgríms er glæsileiki? Hvernig myndi Björk skora þar?
\"Björk er glæsileg á sinn frumlega og einstaka hátt. Hún nær athyglinni hvar sem hún fer og fólk myndi súpa hveljur af spenningi yfir því að sjá í hverju hún myndi vera þegar hún gengur inn sviðið í heimsókn til þjóðhöfðingja nágrannalandanna. Þjóðin myndi vera límd við skjáinn og vildi sjá það í beinni útsendingu þegar Margrét tæki á móti henni í Amalienborg svo ég tali nú ekki um í mögulegum heimsóknum til fjarlægari landa. Að hugsa sér Björk í heimsókn til Bandaríkjaforseta væri frábært sjónvarpsefni, því Björk yrði í mörgu svo mikil andstæða þess að vera klassískur forseti. Samt er hún afar glæsileg - ekki kannski á þann hátt að vera klassískt tignarleg - en samt afar glæsileg sem einlæg, hófstemmd, frumleg og ekki síst fjarlæg þeim elementum sem offramboð er af og margir eru orðnir þreyttir á.\"


Fyrst og fremst fulltrúi almennings
Staðhæfa má að fæstir Íslendingar myndu óska sér þess að Donald Trump tæki sem Bandaríkjaforseti á móti Björk í Hvíta húsinu. Vonandi verður sú ekki niðurstaðan. En er Björk fulltrúi almennings?
\"Engum blöðum er um það að fletta að Björk væri fyrst og fremst fulltrúi almennings og myndi taka afstöðu með fólkinu sjálfu í öllum veigamiklum málum og standa vörð um að öfl sem geta í einhverjum tilvikum náð inn í vald lagasetningar nái ekki of miklu vægi,\" svarar Hallgrímur ákveðið.
\"Lokapunkturinn í þessari vangaveltu um Björk er auðvitað hvort hún hafi áhuga á slíku verkefni. Auðvellt er að giska á að hún hafi það ekki án þess að hafa nokkra hugmynd um það. Enginn veit það nema hún sjálf en hún gæti mögulega séð vinkil í því að fá enn sterkari glugga til að ræða sín hugðarefni fyrir utan tónlistina og ná að skilja eftir sig enn sterkari spor en áður á sviði umhverfis- og náttúruverndar í alþjóðlegu samhengi. Það gæti verið eitthvað sem hún hefði áhuga á að nálgast en hún verður auðvitað að svara fyrir það sjálf,\" segir Hallgrímur að lokum.

Niðurstaðan: Björk Guðmunds yrði frábær forseti.

 

-BÞ