Björk borgar skatta hér, en álverin?

\"Björk býr á Íslandi og greiðir sína skatta,\" skrifar Guðmundur Gunnarsson, faðir söngkonunnar kunnu og dáðu á fésbók sinni síðdegis, en fréttafárviðri dagsins hefur snúist um ummæli þingmannsins Jóns Gunnarssonar um Björk.

Í færslu sinni kvaðst Jón ekkert skilja í Björk sem kallað hefur helstu ráðherra landsins sveitalubba vegna virkjanaáráttu þeirra. Honum hafi sýnst hún \"frekar dauf til augnanna á bakvið grímuna,\" skrifaði Jón um upplifun hans af Björk á nýlegum blaðamannafundi og vilja margir meina að þar hafi þingmaðurinn  látið að því liggja hún hefði verið þar dópuð. Og spurði jafnframt: \"... borgar hún skatta og gjöld á Íslandi.\"

Faðir Bjarkar bregst nú við af hörku - og spyr Jón á móti, yfirlýstan álverssinna: \"Hvar eru skattar stóriðjunnar? Hvar eru auðlindagjöld þeirra fyrirtækja sem kostuðu Jón á þing,\" og má vænta þess að þingmaðurinn svari fyrir sig, enda er hér kominn slíkur slagur fram í þjóðmálaumræðunni að allt atið hans Gunnars Nelson bliknar í samanburði.