Björk ballet á svið

Þann 26.apríl mun San Franciscoballetinn frumsýna „Björk Ballet“, nýtt verk byggt á verkum Bjarkar Guðmundsdóttur og Sjóns, sem hefur samið texta við sum laga Bjarkar eins og kunnugt er. Morgunblaðið segir frá.

Á heimasíðu balletsins segir að verkið sem verður vel rúmar tvær klukkustundir, fjalla um mörkin á milli lífs og dauða, hið óendanlega haf þar á milli. Þrír dansarar verða í sýningunni sem verður að hluta súrrealísk en líka munu dansararnir túlka fegurð og sársauka í samböndum manna undir tónlist og texta Bjarkar og Sjóns.

Balletinn sem Helgi Tómasson hefur um langt árabil stýrt mun sýna verkið þrisvar sinnum næstu vikurnar eftir frumsýningu.