Björgvinsbelti til að auka öryggi um landið

Landsbjörg mun í sumar og haust setja upp um 100 svonefnd Björgvinsbelti, björgunarlykkjur við ár, vötn og sjó til auka öryggi þeirra sem eiga leið um landið. Verkið er í samstarfið við Vegagerðina og Sjóvá. Nú er sá tími kominn að björgunarsveitir verða kallaðar út margsinnis til að aðstoða ferðamenn. Jónas Guðmundsson sem sér um slysavarnarmál fer yfir þessa nýju öryggiþætti á Hringbraut í kvöld og fleira sem Landsbjargarfólk stendur frammi fyrir nú þegar ferðamannastraumurinn eykst.

Undir merkjum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar starfa nú þúsundir sjálfboðaliða í 99 björgunarsveitum.