Björgvin Páll var aðeins 8 ára þegar hann hugsaði fyrst um að stytta sér aldur: „Síðustu ár hef ég aldrei óttast dauðann“

„Jæja þá hlaut að koma að því að einveran í sóttkví eftir langt stórmót gekk frá mér.“ Svona hefst einlægur pistill Björgvins Páls Gústavssonar, landsliðsmarkmanns, á Facebook. Segir Björgvin Páll að hann hafi grátið í nánast samfleytt klukkustund eftir að hafa fylgst með útför Stefáns Karlssonar, sem lést á heimili sínu 19. janúar síðastliðinn aðeins 41 árs gamall.

„Sjálfsvígstilraunar hafa litað mína æsku mikið eins og einhverjir vita en sjálfur hugsaði ég fyrst um að taka mitt eigið líf 8 ára gamall,“ segir Björgvin Páll. „Síðustu ár hef ég aldrei óttast dauðann en hinsvegar þegar ég komst á botninn fyrir ekki svo löngu síðan var ég oft hræddur um að ég myndi gera eitthvað sem að mig ekki langaði að gera.“

Hefur það bjargað geðheilsu hans að ræða vanlíðanina.

„Það sem að bjargaði minni geðheilsu var að tala um hlutina og opna mig með mína vanlíðan. Þetta snýst ekki um hvað maður á eða hvað maður á ekki. Þetta snýst um að vera fangi eigin hugsana.“

Vitnar hann svo í orð prestsins í útför Stefáns. „Gerum það fyrir Stebba að sameinast um að koma tilfinningum okkar og kvíða oftar í orð.“

Hvetur Björgvin fólk sem hefur engan til að deila hugsunum sínum að hafa samband. „Ef að einhver minna vina eða fylgjenda er að burðast með eitthvað og finnur engann til þess að deila því með, sendu mér línu. Því að það á enginn að burðast einn með sársauka.“