Björgvin karl og jacqueline dahlstrøm sigruðu

Það var hann Björgvin Karl Guðmundsson sem sigraði í karlaflokki á Crossfit Reykjavík Championship, en lokadagur leikanna var í dag. Sigurinn var aldrei í hættu en Björgvin endaði með 90 stiga forskot á næsta mann, en það var hann Hinrik Ingi Óskarsson sem endaði í öðru sæti.

Hinrik tryggði sér þannig þátttökurétt á heimsleikunum en Björgvin Karl er nú þegar búinn að tryggja sér miða á leikana og því fór keppnisrétturinn yfir til Hinriks. Will Moorad lenti í 3. sæti og Haraldur Holgeirsson varð þriðji efsti Íslendingurinn á mótinu en hann lenti í 15. sæti. 

 

 \"\"

Í kvennaflokki var það Jacqueline Dahlstrøm sem sigraði mótið en hún endaði með sjö stiga forskot á annað sætið. Fjórar efstu í kvennaflokki á mótinu eru allar búnar að tryggja sér farseðil á heimsleikana og því fór keppnisrétturinn yfir til Hanna Karlsson sem varð í 5. sæti.

Mikið var fylgst með íslensku ,,dætrunum” á mótinu en hún Þuríður Erla Helgadóttir endaði í 4. sæti, Jóhanna Júlía Júlíusdóttir í 15. sæti og Sólveig Sigurðardóttir í 19. sæti.