Ef svo fer sem horfir gæti eldgosið í Geldingadölum náð niður á Suðurstrandarveg áður en langt um líður. Ef það gerist hverfur mikilvæg samgönguæð fyrir Suðurnesin, Suðurlandið og aðra sem vilja sleppa við að keyra inn í höfuðborgina til að komast á milli staða.
Björgvin Halldórsson, söngvari með meiru, setti fram hugmynd á Facebook í dag um hvernig stöðva mætti hraunið.
„Er hugsanlega ekki kominn tími á að fara að hugsa um að koma upp vatnsdælum á suðurstranda veginum í ljósi þess að hraunið rennur rólega í átt að sjónum. Ekkert vatn á eldstöðvunum en nóg að sjó fyrir neðan veginn,“ segir Björgvin. „Vestmannaeyingar gerðu þetta með góðum árangri og létu hraunið gera sinn eigin varnargarð. Bara hugmynd…“