Björgunarsveitir ekki enn hafið formlega leit

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra mun í dag funda með Simon Coveney, utanríkis- og viðskiptaráðherra Írlands. Fundurinn var löngu ákveðinn og snýr að málefnum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna en Guðlaugur Þór hefur óskað eftir því að fá að ræða einnig málefni Jóns Þrastar Jónssonar við Coveney. Björgunarsveitir á Írlandi hafa ekki enn hafið formlega leit að Jóni Þresti, sem hvarf fyrir 16 dögum. Fréttablaðið greinir frá.

„Ég taldi mikilvægt að nýta tækifærið þegar ég hitti ráðherrann. Ég veit að hann er vel upplýstur og meira en tilbúinn til að ræða þessi mál. Vonandi verður eitthvað búið að gerast fyrir þann tíma,“ segir Guðlaugur Þór í samtali við Fréttablaðið.

Jóns Þrastar hefur verið saknað síðan að morgni 9. febrúar síðastliðins, þegar hann sást síðast í Dyflinni um 11 leytið. Umfangsmikil leit sem aðstandendur Jóns Þrastar stóðu að um liðna helgi í borginni bar ekki árangur en þó hafa nýjar vísbendingar um hvarfið komið upp á yfirborðið og verið komið til írsku lögreglunnar.

Björgunarsveitir Írlands ekki hafið leit

Í fréttum Stöðvar 2 fyrir viku síðan var rætt við Þórunni Jónsdóttur, systur Jóns Þrastar, og Katrínu Björk Birgisdóttur, mágkonu hans, þar sem þær gagnrýndu lítil afskipti yfirvalda í málinu. Þær hafi þurft að sækja alla aðstoð sjálf og hafi mestmegnis fengið aðstoð frá góðviljuðum sjálfboðaliðum.

Björgunarsveitir á Írlandi hafa ekki enn hafið formlega leit. Um það sagði Katrín Björk fyrir viku síðan: „Áður en maður lendir í þessu þá myndi maður halda að öll björgunarsveitin myndi fljúga og leita. Við erum náttúrulega bara vön þessu æðislega teymi hér á Íslandi, ef einhver týnist þá eru hundrað manns farnir út að leita. Svo dettur maður bara inn í raunveruleikann og fattar að það er engin að sjá um okkur með þetta. Við erum að sjá um þetta sjálf.“

Aðspurður hvort hann muni þrýsta á að björgunarsveitir á Írlandi hefji formlega leit segir Guðlaugur: „Þetta er eitthvað sem við munum fara yfir. Þetta er á forræði Íra, en þeir hafa tekið vel í allar okkar málaleitanir.“