Björgunarsveitir að störfum vegna veðurs

Meðlimir fjölda björgunarsveita eru að störfum í dag vegna vonskuveðurs víða um land. Að minnsta kosti fjórir bílar voru í vandræðum á Möðrudalsöræfum um hádegisbil og vonskuveður var mikið fyrri hluta dags á Holtavörðuheiði, þar sem níu manns var m.a. bjargað úr tveimur bílum.

Fréttablaðið.is greinir frá því að 60 félagar sextán björgunarsveita væru nú að störfum. Gul viðvörun er víða um land og vegir lokaðir.

RÚV.is greinir frá því að þungfært hafi verið á Vestfjörðum eftir mikla snjókomu og að stórhríð sé um mest allt Norðurland. Þá sé hvassviðri í Vestmannaeyjum og þakplötur farnar að fjúka.

RÚV greinir frá því að björgunarsveitarfólk sé bjartsýnt þó veður hamli för þar sem spáin sé góð fyrir kvöldið víðs vegar um landið. Í samtali við Mbl.is segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, að hugsanlega verði enn vonsku­veður á Suðaust­ur­landi og Aust­ur­landi um kvöldið, þar sem víða verði enn hvasst og élja­gang­ur.