Björgunarsveitarmenn reyna að koma hval úr fjörunni við eiðistorg – sjáðu myndbandið

Áttavilltur og ringlaður hvalur svamlar nú um í fjörunni til móts við Eiðistorg. Björgunarsveitarmenn hafa frá því í morgun reynt við tíunda mann að koma hvalnum aftur á haf út en þeir hafa ekki enn haft erindi sem erfiði.

Um þessar mundir er hvalurinn nokkur hundruð metra frá fjörunni.

„Við höld­um áfram þangað til ákvörðun verður tek­in um annað. Við verðum eitt­hvað fram eft­ir,” seg­ir Davíð Már Bjarna­son, upp­lýs­inga­full­trúi hjá Slysa­varn­ar­fé­lag­inu Lands­björg, í samtali við Mbl.is.

Steinunn Árnadóttir, garðyrkju­stjóri Seltjarn­ar­nes­bæj­ar, segir við Mbl.is að björgunarsveitarmenn hafi hringsólað í kringum hvalinn á björgunarbát og reynt að stugga við honum, án árangurs. Að hennar sögn virki hvalurinn laslegur og virðist alltaf leita aftur að landi.

Hringbraut var á staðnum undir hádegi og má sjá aðgerðir björgunarsveitarmannanna í meðfylgjandi myndbandi:

Auk þess má hér sjá nokkrar ljósmyndir frá vettvangi:

\"\"

\"\"

\"\"