„Björgunarsveitafólk Íslands eru hetjur heimsins. Mikið búið að vera gera hjá þeim síðustu vikur, ekki síst í okkar stóra umdæmi LSNE og margir komið þreyttir heim. Engin einasta sveit er þar undanskilin. Nú stendur víða yfir sala flugelda til að reyna standa straum af einhverjum þeim kostnaði sem af hefur hlotist.“
Þannig hefst stuttur pistill á Facebook-síðuu lögreglunnar á Norðurlandi Eystra. Þar er björgunarsveitarfólki hrósað fyrir sín störf og fólk kvatt til að styðja við bakið á hetjunum. Þar segir enn fremur:
„Rekstur sveitanna, viðhald tækja og endurnýjun búnaðar. Enginn afsláttur er hins vegar gefinn á umgengi, öryggi og geymslu er varðar flugelda og sölu þeirra, enda um leyfisskylda starfsemi að ræða sem krefst gætni, kunnáttu og virðingar. Lögreglumenn um land allt líta til með söluaðilum jafnt innan embættis Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og annars staðar. Lögreglumenn á Húsavík kíktu nýverið við í húsakynnum Garðars á Húsavík, Stefáns í Mývatnssveit, Þingeyjar á Stórutjörnum og skáta í Aðaldal. Alls staðar var góð regla á hlutum og framkvæmd öll til fyrirmyndar.“