Björgunarstarf víða enn í gangi

Björg­un­ar­sveit­ir eru enn að störf­um á sunna­verðum Vest­fjörðum og Norður­landi en í Skagaf­irði er verið að reyna að bjarga þaki af bónda­bæ sem er að fjúka. Alls eru út­köll­in orðin 350 til 360 tals­ins og tals­vert fjár­hags­legt tjón.

Jón­as Guðmunds­son upp­lýs­inga­full­trúi Slysvarn­ar­fé­lags­ins Lands­bjarg­ar, seg­ir í samtali við fréttavef Morgunblaðsins að um sjö hundruð björg­un­ar­sveit­ar­menn hafi tekið þátt í aðgerðum í gær og í nótt en út­lit er fyr­ir að björg­un­ar­sveit­ar­menn verði að störf­um til há­deg­is fyr­ir norðan og á Vest­fjörðum en þar er bál­hvasst.

Á fréttavefnum segir aukinheldur að á höfuðborg­ar­svæðinu hafi síðustu fimm­tíu björg­un­ar­sveit­ar­menn­irn­ir farið til síns heima um sjö leytið í morg­un.

Eins og fram kemur í öðrum fréttum Hringbrautar, tengdum óveðrinu, er ljóst að fjár­hags­legt tjón er tal­vert en heil þök fuku á ein­hverj­um stöðum, gám­ur með bú­slóð tók flugið og bát­ar sukku. Við Háa­leit­is­braut splundraðist strætó­skýli og í Vest­manna­eyj­um tók þak af íbúðar­húsi við Smára­götu og lenti í heilu lagi á lóð rétt hjá, svo fátt eitt sé nefnt af út­köll­um björg­un­ar­sveitar­fólks.