Landsréttur staðfesti fyrir helgi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem kaupsýslumaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson var sýknaður af 600 milljóna króna bótakröfu tveggja fyrirtækja - Venus og Vogun. Kristján Loftsson, oftast kenndur við Hval ehf, er í forsvari fyrir bæði félögin.
Félögin kröfðust bóta á þeim grundvelli að eignarhaldsfélagið Samson hefði verið meirihlutaeigandi í Landsbankanum fyrir hrun. Félagið hefði því átt að bjóðast til að kaupa aðra hluthafa út úr bankanum. Venus krafðist 238 milljóna og Vogun 366 milljóna.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/bjorgolfur-syknadur-af-botakrofu-kristjans