Samkvæmt samantekt The Sunday Times er Björgólfur Thor Björgólfsson á meðal hundrað ríkustu manna Bretlands. Bakkavararbræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir komast einnig á lista yfir þá þúsund ríkustu í Bretlandi. Frá þessu er greint í Markaðnum.
Björgólfur er metinn á 1,7 milljarð punda, eða um 270 milljarða íslenskra króna. Markaðurinn greinir frá því að til samanburðar megi nefna að heildartekjur íslenska ríkisins árið 2018 hafi verið um 840 milljarðar króna. Nema auðæfi Björgólfs því um þriðjungi af heildartekjum ríkisins. Talið er að eignir Björgólfs hafi á síðastliðnu ári aukist um 98 milljónir punda, um sextán milljarða króna.
Bræðurnir Ágúst Guðmundsson og Lýður Guðmundsson, oftast þekktir sem Bakkavararbræður, eru metnir á um 560 milljónir punda, tæplega 90 milljarða króna. Þeir bræður hafa rokkað upp og niður listann síðastliðin ár. Ágúst og Lýður voru til að mynda í 197. sæti á lista The Sunday Times í byrjun árs 2018 en höfðu verið í 885. í byrjun árs 2017, líkt og Kjarninn greindi frá í haust.