Eyjólfur Árni Rafnsson gefur kost á sér í embætti formanns Samtaka atvinnulífsins (SA) en Björgólfur Jóhannsson, sem verið hefur formaður SA í fjögur ár, hefur tilkynnt að hann hyggst ekki gefa kost á sér áfram. Mbl.is segir frá þessu
Nýr formaður verður valinn í aðdraganda aðalfundar SA hinn 29. mars nk.
Eyjólfur Árni hefur setið í stjórn Samtaka atvinnulífsins frá 2014 Frá árinu 2014 hefur hann átt sæti í stjórn Samtaka iðnaðarins og jafnframt verið varaformaður SI.Eyjólfur Árni var forstjóri Mannvits og forvera þess félags í 12 ár til ársloka 2015.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair hefur formaður SA undanfarin fjögur ár. Hann hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku samtakanna.