Athafnamaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson segir hópmálsóknina á hendur sér vera gróðabrall lögmanna og hefur kvartað til úrskurðanefndar lögmanna vegna málsins sem hann kallar algert auglýsingaskrum.
Fram hefur komið í fjölmiðlum að fyrrverandi hluthafar í Landsbanka Íslands hf. hafa nú um nokkurt skeið unnið með lögmannafyrirtækinu Landslögum að undirbúningi hópmálsóknarinnar. Birt var heilsíðuauglýsing í dagblöðum í morgun þar sem vakin var athygli á henni. Hluthafarnir telja að Björgólfur hafi með saknæmum hætti komið í veg fyrir að hluthafar Landsbankans fengju upplýsingar um umfangsmiklar lánveitingar tengdar honum fyrir bamkahrunið, auk þess sem hann hafi brotið gegn reglum um yfirtökuskyldu.
Björgólfur hefur sjálfur sagst ætla að reka málið fyrir dómstólum en ekki fjölmiðlum, en nú síðdegis sendi talskona hans yfirlýsingu til fjölmiðla þar sem athafnamaðurinn ræðst harkalega að áformum hluthafahópsins og fyllyrðir að þar sé um ekkert annað en auglýsingaskrum að ræða, enda kosti að lágmarki 5000 krónur til að ganga í málsóknarfélagið og upphæðin fari stighækkandi eftir því hve marga hluti viðkomandi hafi átt í bankanum; allir sjái hvaða gróðrabrall hér sé á ferðinni.
Björgólfur skrifar: \"Til að fá greiðslu þóknana sinna vilja lögmennirnir eðlilega lokka mikinn fjölda hluthafa til málsins. Því er e.t.v. ekki að undra að lögmennirnir séu tilbúnir að beita vafasömum meðölum.“ Hann bendir á að lögmennirnir hyggist til viðbótar við þegar heimtar þóknanir hafa af málsóknarfélaginu 25 milljónir króna í þóknanir, jafnvel þótt málið tapist. Að auki verði félagsmenn að greiða annan kostnað, s.s. við vinnu sérfræðinga. Fái hluthafar skaðabætur muni lögmennirnir þá taka 10% af þeim.
Björgólfur skrifar áfram: \"Þeir freistuðust til að mæta í Kastljós í gærkvöldi í auglýsingaskyni þar sem þeir héldu fram röngum, ófullnægjandi og villandi upplýsingum,“ segir hann og heldur áfram: \"„Þeir hafa, svo fátt eitt sé nefnt, ranglega haldið því fram að viðskipti Samsonar með hluti bankans hafi verið málamyndagerningar sem hafi aldrei verið efndir. Þá hafa þeir ranglega haldið því fram að Landsbankinn í Lúxemborg hafi verið eigandi hluta sem geymdir voru á vörslureikningi viðskiptavinar bankans. Þetta allt gera þeir til að lokka til sín viðskiptavini á röngum forsendum.“
„Þetta er óásættanlegt,“ skrifar Björgólfur.