Björgólfur Thor Björgólfsson hefur í bígerð að hefja að nýju fjárfestingar í Rússlandi, en um og upp úr síðustu aldamótum auðgaðist hann mjög á viðskiptum í Pétursborg ásamt föður sínum Björgólfi Guðmundsson og félaga þeirra Magnúsi Þorsteinsyni. Björgólfur Thor geinir frá þessu í ítarlegu viðali við breska blaðið Financial Times í dag, en endurnýjaðan áhuga sinn á Rússlandi rekur hann til falls rúblunnar og átakana í Úkraínu sem til saman geri gerska heimsveldið að fýsilegum fjárfestingarkosti að nýju.
Í viðtalinu segir Björgólfur Thor að bestu viðskiptatækifærin skapist annaðtveggja þegar fjárfest sé í lasburða fyrirtækjum í öflugum löndum, eða öflugum fyrirtækjum í lasburða löndum. Hann kveðst ekki síst horfa til álitslegra fjarskiptafyrirtækja í þessum fyriráætlunum sínum í austurvegi.
Björgólfur Thor fór eins og fyrr greinir til Rússlands á tíunda áratug síðustu aldar og byggði þar upp gosdrykkja- og bjórframleiðslu í félagi við föður sinn og Magnús. Þeir seldu það fyrirtækið við háu verði árið 2002 og nam hagnaður Björgólfs Thors hátt í 15 milljörðum króna.