Björg­ólfur telur að namibíu­málið muni fá skjótan endi

Björg­ólfur Jóhanns­son, starfandi for­stjóri Sam­herja, telur að Namibíu­málið muni fá skjótan endi, rétt eins og Seðla­banka­málð. Frá þessu er greint á vef Stundarinnar en þar er vitnað í frétt norska blaðsins Fi­s­keribladet.

„Hið svo­kallaða Seðla­banka­mál gegn Sam­herja fékk skjótan endi eftir að Sam­herji hafði fengið að­gang að þeim gögnum sem rann­sóknin var byggð á. Mark­mið okkar er að þetta muni gerast aftur í til­felli Sam­herja og við­skipta þess í Afríku,“ er haft eftir Björg­ólfi.

Fé­lagið komst í heims­fréttirnar eins og flestir muna en gögn frá Wiki­leaks og fram­burður Jóhannesar Stefáns­sonar, fyrr­verandi starfs­manns fé­lagsins, bentu til þess að fé­lagið hefði varið háum fjár­hæðum í mútu­greiðslur til hátt­settra manna í Namibíu til að komast yfir makríl­kvóta.

Þá er haft eftir Björg­ólfi að frétt Stundarinnar um málið sé full af rang­færslum. Björg­ólfur til­greinir hins vegar ekki meintar rang­færslur. Hann segist telja að þegar öll gögn muni liggja fyrir í málinu verði fé­lagið því hreinsað af á­sökunum.