Höfuðborgarlistinn mun bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum i vor.
Björg Kristín Sigþórsdóttir frumkvöðull og framkvæmdastjóri leiðir listann.
Björg hefur áður látið að sér kveða í íbúamálum, m.a. sem talsmaður íbúa þegar Björt Ólafsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, voru í fyrrasumar afhentir undirskriftarlistar frá íbúum við Rauðagerði og öðrum nærliggjandi götum í Reykjavík vegna fyrirhugaðra framkvæmda í hverfinu.
Um er að ræða þverpólitískan hóp 46 einstaklinga „… sem eru sammála um að standa vörð um sérstöðu Reykjavíkur sem höfuðborgar landsins, þannig að hún geti aftur verið stolt allra landsmanna”, segir m.a. í tilkynningu framboðsins.
Áherslur framboðsins eru meðal annars:
Byggja 10.000 íbúðir á kjörtímabilinu og sérsníða einstaka húsnæðisstefna fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem eru að kaupa sína fyrstu eign.
Einfalda stjórnkerfi og skipulag Reykjavíkurborgar, auk þess sem aðgengi höfuðborgarbúa að Borgarstjóra, kjörnum fulltrúum og stjórnkerfinu verður auðveldað.