Björg Árnadóttir, rithöfundur, blaðamaður og ritlistarkennari til þrjátíu ára var viðmælandi Snædísar Snorradóttur í Skrefinu lengra.
Björg er framkvæmdastjóri og eigandi Stílvopnsins sem býður upp á fjölbreytt námskeið í skrifum af öllum toga.
„Flaggskipið mitt eru skapandi skrif, ég hef kennt það námskeið í um þrjátíu ár og þróað. Síðan bætti ég við greinaskrifum og endurminningaskrifum. Ég hef líka kennt blaðamennsku og því var eðlilegt að byrja á greinaskrifunum. En upp á síðkastið hef ég verið að bæta við námskeiði í skrifum sem kallast ferð hetjunnar. Ég er með tvennskonar ólík námskeið sem byggjast á ferð hetjunnar og svo er ég með námskeið sem er bara ein kvöldstund þar sem fólk getur komið með verkin sín, sem ég kalla „upp úr skúffunum“ og þar getum við rætt saman um verkin og hvað sé hægt að gera og svoleiðis,“ segir Björg í viðtali við Snædísi.
Horfðu á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan: