Björg Berg veit hvernig á að reisa á þjóðarleikvang án Bjarna og Dags: „Borðleggjandi dæmi“

Heitar umræður hafa skapast um nýjan þjóðarleikvang í Laugardalnum. Málið er búið að vera á dagskrá í áraraðir og finnst mörgum tími til kominn að uppfæra völlinn í takt við gengi íslensku landsliðanna í knattspyrnu. Fyrir utan frjálsu íþróttirnar og tónleikahald.

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sagði nýverið að málið strandaði á Reykjavíkurborg sem vildi ekki setja fé í verkefnið. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, sagði hins vegar að málið strandaði á ríkinu sem gerði ekki ráð fyrir verkefninu á fjármálaáætlun.

Björg Berg Gunnarsson hjá greiningu Íslandsbanka benti á aðra leið sem hægt væri að fara án þess að fá peninga hjá ríki eða borg.

„Tvennt virðist einkum geta gerst með Laugardalsvöll: a) Rándýrar framkvæmdir hefjast eftir mörg ár og eiga eftir að valda vonbrigðum,“ segir hann á Twitter. „b) KSÍ afþakkar aðkomu hins opinbera og ræðst fljótlega í fasteignaverkefni þar sem völlurinn verður meðal annars endurbættur.“

Birtir hann svo mynd af Viking Stadion í Stavanger í Noregi.

4420862892_8f7ba9a744_b.jpg

Björn Teitsson hjá Krabbameinsfélaginu segir þetta borðleggjandi: „Fasteignaþróunarverkefni á þessu risabílastæði Löllarans gæti semi greitt fyrir nýjan völl. Borðleggjandi dæmi. Hver fer á bíl á völlinn, anyway? Útilokar bjórinn, útilokar stadium-labbið, tekur verðmætt stemmara-pláss fyrir utan völl, er ónotað 99,8% ársins.“

Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir stæðin fyrir utan Laugardalsvöll ekki notuð:

„Þetta bílastæði er meira að segja lokað þegar eru landsleikir. Hef aldrei séð þetta nýtt nema núna á stærstu bólusetningadögunum.“

Friðjón Friðjónsson hjá KOM almannatengslum segir að þessar hugmyndir strandi samt á borginni:

„RVK leyfir ekki fasteignaverkefni og ber fyrir sig skipulagi. Njet á skrifstofur, hotel og bar,“ segir hann. „Ég man að það var pælingin upphaflega en borgin vildi það ekki og bar við skipulagi. Ef það hefði verið hægt væri völlurinn líklega kominn og hótel á milli sundlaugarinnar og vallarins sem hefði farið langleiðina með að borga völlinn árið 2018. Það síðasta sem heyrðist úr slúðri fótboltans var að borgin var ekki einu sinni til í að leggja fram það sama og þau myndu fá í aukin fasteignagjöld af nýjum velli. Þannig að defacto ætlaði borgin að græða á uppfærðum velli.“