Hástökkvarar á lista áhrifamestu Íslendinganna árið 2015 eru Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, Markús Sigurbjörnsson, hæstaréttardómari og Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri í Skagafirði.
Þetta kemur fram í nýjasta hefti tímaritsins MAN, sem biritir téðan lista árlega; Björgólfur fer úr sæti 97 í 6, Dagur úr 28 í 4, Ólafía úr 77 í 13, Markús úr 74 í 12 og Þórólfur úr 44 í 14. Sjónvarpsstöðin Hringbraut verður með sérstaka sjónvarpsþætti um áhrifafólkið á jóladagskránni í umsjá Bjarkar Eiðsdóttur, ritstjóra MAN, en þættirnir eru á dagskrá þriðja og fjórða í jólum, á sunnudags- og mánudagskvöld klukkan 20:30.
Þeir áhrifamenn sem halda velli eru Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem er samkvæmt listanum áhrifamesti Íslendingurinn nú um stundir, Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri, Björk Guðmundsdóttir, söngkona og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.
Meðal nýrra á listanum eru Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri, Sigurður Hannesson, bankamaður, Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, Arnaldur Indriðason, rithöfundur, Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, Ólöf Nordal, innanríkisráðhera, Grímur Sæmundsen í Bláa lóninu, Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins og Sigmundur Ernir Rúnarsson, sjónvarpsstjóri Hringbrautar.
Meðal þeirra sem falla út af listanum eru ráðherrarnir (núverandi og fyrrverandi) Eygló Harðardóttir, Illugi Gunnarsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir, þingmennirnir Frosti Sigurjónsson og Guðmundur Steingrímsson, rithöfundurinn Mikael Torfason, fréttamennirnir Óðinn Jónsson og Sigmar Guðmundsson, fjölmiðlafólkið Páll Magnússon og Ellý Ármannsdóttir og loks lögmaðurinn Jón Steinar Gunnlaugsson.
Af þeim 100 sem nú eiga sæti á listanum voru 47 einnig á listanum árið 2013 sem merkir að nú eru 53 nýir þar. Konur eru 24 af 100 á listanum en voru 29 síðast: \"Sú þróun mætti vera jákvæðari,\" segir Björk Eiðsdóttir, ritstjóri tímaritsins MAN sem birtir listann í lokablaði hvers árs.