Bjóðum upp á bættan lífsstíl

Gunnlaugur K. Jónsson forseti Nátúrulækningafélags Íslands (NLFÍ) segir það sorglegt að verið sé að blanda saman dæmigerðu svindli á fólki og hefðbundnum náttúrulækningum sem hafi verið stundaðar um margra áratugaskeið undir leiðsögn lækna og sérfróðra manna á sviði heilbrigðismála. Þetta kom fram í heilsu- og útivistarþættinum Lífsstíl á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld þar sem Gunnlaugur var gestur Sigmundar Ernis í kjölfar allrar umræðunnar um óhefðbundnar lækningar, eða öllu heldur mjög umdeildar leiðir að bættri heilsu sem greint var frá í Kastljósi RÚV nú nýverið. Gunnlaugur minnti í viðtalinu á að sögu NLFÍ mætti rekja til hugsjóna læknisins og frumherjans Jónasar Kristjánssonar á fjórða áratug síðustu aldar sem síðar var upphafsmaður að heilsulækningunum í Hveragerði sem landsmenn þekkja. Þar hafi strax verið lögð áhersla á að almenningur legði stund á hæfilega hreyfingu, vandað mataræði og góða hvíld sem þá þótti fremur öfgafull afstaða í læknavísindum. Náttúrulækningar hefðu frá upphafi byggst á heilbrigðri skynsemi og bestu vitneskju um þarfir líkama og huga sem til hefði verið á hverjum tíma; í reynd snerust þau um að fara eins vel með það líf sem hverjum væri fengið og nokkur kostur væri til að minnka álagið á sjúkrahús landsmanna.

Hægt er að sjá klippu úr viðtalinu við Gunnlaug hér