Allar fimm leikkonurnar, sem tilefndar voru til Óskarsverðlauna fyrir leik í aðalhlutverki, hundsuðu Ryan Seacrest á Rauða dreglinum fyrir afhendinguna í gærkvöldi. Engin þeirra vildi stoppa í viðtali hjá honum.
Seacrest liggur undir ásökunum um kynferðislegt áreiti gegn samstarfskonu sinni á sjónvarpstöðinni E! Margot Robbie, Frances McDormand, Saoirse Ronan, Sally Hawkins og Meryl Streep strunsuðu allar framhjá Seacrest.
Frances McDormand gekk eftirminnilega fram fyrir hönd kvenna í þakkarræðu sinni. Hún bað allar konur sem tilnefndar höfðu verið til verðlauna að standa upp og bað fólk um að líta í kringum sig. Allar þessar konur hefðu sögur að segja og verkefni sem þörfnuðust fjármögnunar. „Ekki tala um þau við okkur hér í veislunni, bjóðið okkur frekar á fund á skrifstofunni ykkar,\" sagði hún.