Bjóða upp áritaða treyju til minningar um Kamillu Ýr

Liver­pool-klúbbur á Ís­landi stendur fyrir upp­boði á treyju til minningar um Kamillu Eir Styrmis­dóttir. Hún lést að­eins sex mánaða gömul þann 6. maí síðastliðinn. Kamilla barðist bæði við hjarta­bilun og efna­skipta­sjúk­dóminn MMA á sinni stuttu ævi. Upp­boðið er til styrktar Um­hyggju – fé­lags lang­veikra barna. Upp­boðið hófst í morgun og stendur í viku.

Treyjan er merkt Xabi Alon­so og á­rituð af honum en hann lék með Liver­pool árin 2004-2009.

Í til­kynningu frá klúbbnum segir að fjöl­skylda Kamillu séu miklir stuðnings­menn Liver­pool og því hafi þau á­kveðið að efna til upp­boðs til minningar um hana.

Á­góðinn af upp­boðinu mun renna ó­skiptur til Um­hyggju – fé­lags lang­veikra barna, en félagið veitti fjöl­skyldu Kamillu mikinn stuðning í veikindum hennar og eftir að hún lést.

Boð í gripinn er hægt að senda á net­fangið hjalp@liver­pool.is. Hægt er að fylgjast með hæsta boði hverju sinni á vef klúbbsins hér.