Boðaðar eru róttækar breytingar á lögum um mannanöfn. Mannanafnanefnd verður til dæmis lögð niður verði frumvarp innanríkisráðherra samþykkt eins og tillögurnar liggja fyrir núna frá ráðuneytinu. Í þeim mega allir bera ættarnöfn kjósi þeir svo og engar takmarkanir á lengd nafna. Núna er óskað eftir umsögnum um frumvarpið en það er næsta víst að umræðan á næstunni verður lífleg.
Guðrún Kvaran, prófessor og formaður íslenskrar málnefndar er sest hér á Þjóðbrautina mætti á Hringbraut og sagði flestar breytingar sem boðaðar væru til óheilla og sagðist telja mjög líklegt að föðurnafnakerfið lognast af á stuttum tíma komi til breytinganna. Hún sagði einnig að hún teldi að hafa þyrfti stundum við fyrir fólki þegar það velur nöfn á börnin sín og tók dæmi þegar skíra átti stúlku \"Helgrímu\" eða dreng \"Lúsifer\". Hún sagði breytingarnar bjóða upp á alls konar „nafnskrípi\".