Samband ungra sjálfstæðismanna selur nú bæði jólagjafapappír skreyttan sjálfstæðisfálkanum og sérstakan jólaóróa í anda Sjálfstæðisflokksins, svokallaðan gullfálka.
Ungliðahreyfingin mælir með óróanum í skóinn, í jólapakkann, á jólatréð eða hreinlega um hálsinn.
Óróinn er seldur á 4000 krónur og því kannski í dýrari kantinum sem skraut á tréð, en mjög ódýr sem skartgripur.
Pappírinn er seldur á 1500 krónur rúllan en valin hefur verið umhverfisvæn leið og er pappírinn bæði 100 prósent endurunninn og svansvottaður.
Æskilegt er að hugað sé að stjórnmálaskoðunum viðtakenda áður en jólagjöfum er pakkað inn í sjálfstæðisfálkann enda gætu slíkar gjafir hreinlega eyðilagt jólin á vinstri sinnuðum heimilum sem vilja helst gleyma íhaldinu svona rétt yfir hátíðirnar.
Fálkaskreytt jólatré geta á hinn bóginn gert jólin ógleymanlega hátíð fyrir alla gallharða sjálfstæðismenn.