Bjóða leiguhúsnæði fyrir kynlíf

Dæmi eru um að kon­um í hús­næðis­leit bjóðist íbúðir til leigu gegn því að hluti leigu­verðsins sé gold­inn með kyn­lífsþjón­ustu. 

Starfs­kon­um Kvenna­at­hvarfs­ins er á hverju ári greint frá svona mál­um, seg­ir Sigþrúður Guðmunds­dótt­ir fram­kvæmda­stýra í samtali við Morgunblaðið í dag. Hún tel­ur víst að til­vik þessi séu tals­vert fleiri en op­in­ber­lega er vitað um. Sér þyki dap­ur­legt að til séu þeir sem vilji nýta sér neyð annarra, að því er fram kemur í blaðinu.

\"En mann­skepn­an er óút­reikn­an­leg,\" segir hún við blaðið og bætir við: \"Á hverju ári fáum við vitn­eskju um mál þar sem á að hagn­ast á neyð kvenn­anna. Þess eru dæmi að farið sé fram að á að hluti húsa­leigu sé greidd­ur með kyn­lífsþjón­ustu. Auðvitað ber­ast upp­lýs­ing­ar til okk­ar um aðeins fá­ein þess­ara mála. Þetta eru þó veru­leiki sem er ör­ugg­lega mun al­geng­ari en ætlað er.“

Alls 126 kon­ur með 74 börn leituðu til Kvenn­athvarfs­ins í fyrra, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag. Það eru nokkru fleiri en und­an­far­in ár. Hvað skýr­ir fjölg­un­ina er ekki vitað.