Bjóða kvikmyndaverðlaunahátíð til reykjavíkur

Ríkið og Reykjavíkurborg hafa ákveðið að bjóða fram Reykjavík og Ísland sem vettvang fyrir Evrópsku kvikmyndaverðlaunin 2020. „Við lítum á það sem mikið tækifæri ef það tekst að landa þessu,\" segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sem er staddur í Sevilla þar sem verðlaun ársins 2018 voru afhent í gær.
 

Þetta er stærsta kvikmyndaverðlaunahátíð Evrópu og hana sækja árlega allar helstu stórstjörnur evrópskrar kvikmyndagerðar. Hátíðin fer fram í Berlín annað hvert ár og hitt árið í annarri evrópskri borg. Hátíðin í ár fór fram í Sevilla og í dag lagði Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, inn umsókn þar ásamt fleiri fulltrúum frá ríki og borg.

Nánar á

http://www.ruv.is/frett/bjoda-kvikmyndaverdlaunahatid-til-reykjavikur