Bjóða afturvirka samninga með skilyrðum

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að samtökin fallist á að gildistaka kjarasamninga verði afturvirk frá 1. janúar 2019, með þeim skilyrðum þó að samningar náist fyrir lok þessa mánaðar og taki mið af svigrúmi atvinnulífsins til launahækkana. Eitt af höfuðáherslumálum verkalýðshreyfingarinnar hefur verið afturvirkni kjarasamninga. Fréttablaðið greinir frá.

„Þetta tilboð fellur auðvitað niður ef viðræðum verður slitið og boðað til verkfalla enda ber allt samfélagið kostnað af þeirri aðgerð“, segir Halldór Benjamín í samtali við Fréttablaðið.

Efling, VR og Verkalýðsfélag Akraness ákváðu skömmu fyrir jól að afturkalla umboð sín í kjaraviðræðum frá Starfsgreinasambandinu og vísa kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins í sameiningu til ríkissáttasemjara. Fór fyrsti fundurinn hjá ríkissáttasemjara vegna þessa fram þann 28. desember síðastliðinn og annar fundur fer fram í dag.

Í gær greindi Mbl.is frá því að Verkalýðsfélag Grindavíkur hefði sömuleiðis tekið ákvörðun um að afturkalla umboð sitt frá Starfsgreinasambandinu og vísa kjaradeilu sinni til ríkissáttasemjara. Félagið óskar eftir samstarfi við Eflingu, VR og Verkalýðsfélag Akraness.