Starfsmaður Domino´s var í gær myndbirtur í Facebook hópnum Vesturbærinn. Var þar gefið í skin að starfsmaðurinn ætti sök á því að hjól væru að hverfa í Vesturbænum. Reiðhjólaþjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu hafa færst í vöxt undanfarið og ástandið verið sérstaklega slæmt í Vesturbænum. Í gær var viðtal í Fréttablaðinu við Bjartmar Leósson en þar er hann kallaður hjólahvíslari og sagður hafa fundið fjölmörg hjól „fyrir fórnarlömb fingralanga í miðbæ höfuðborgarinnar.“
En það er einmitt Bjartmar þessi sem sakaði starfsmann Domino‘s um grunsamlega hegðun. Við myndina sem maður að nafni Snorri Guðmundsson birti fyrir hönd Bjartmars í Facebook-hópnum Vesturbærinn sagði:
„Í framhaldi af umræðunni um tíða hjólaþjófnaði í hverfinu þá bað \"hjólhestahvíslarinn\" Bjartmar Leósson mig um að birta þetta á síðunni:2 tilfelli í Vesturbæ þar sem pizzasendill mætir og hagar sér grunsamlega. Sniglast kringum húsin og daginn eftir eru hjól horfin.“
Stundin hefur einnig fjallað um málið og þar segir að engar sannanir hafi verið settar fram um að sendillinn hefði gerst sekur um að stela hjólum. Berglind Jónsdóttir, markaðsfulltrúi Domino‘s tjáði sig einnig um málið og sagði að það væri litið alvarlegum augum þegar birtar væru myndir af starfsfólki og það sakað um þjófnað. Berglind sagði:
„Sendillinn sem um ræðir og sýndur er á myndinni er traustur starfsmaður okkar sem skiljanlega er ekki sama um að vera myndbirtur og sakaður um þjófnað. [...] Í þessu tiltekna máli er ekkert sem bendir til þess að þessi sending og hjólastuldurinn tengist á nokkurn hátt.“ Þá sagði Berglind á öðrum stað: „Við skoðuðum öll gögn málsins og ég get fullyrt að ekki er um sama mann að ræða. Sendillinn var eingöngu að sinna starfi sínu en vegna þeirra upplýsinga sem hann hafði um heimilisfangið og vegna aðstæðna við húsið gekk hann að röngum inngangi áður en hann kom að þeim rétta.“
Snorri birti síðan afsökunarbeiðni fyrir hönd Bjartmars vegna málsins. Þar sagði:
„Sendillinn á Dominos hefur að því er virðist orðið fyrir rangri sök. Biðst afsökunar á þeim miklu óþægindum sem hann hefur orðið fyrir og tek út alla pósta um þessar getgátur okkar.“
Málinu er þó ekki lokið þar sem starfsmaðurinn sem var afar ósáttur við að vera þjófkenndur er nú að leita réttar síns vegna málsins.