Þegar Bjarni var spurður hvort Ísland væri of lítill markaður til að halda úti þremur stórum viðskiptabönkum sagði hann að vilji skoða hvort stærri eining geti mögulega skila meiri hagkvæmni.
„Það er spurning hversu raunhæft það er fyrir okkur að treysta á þriggja banka samkeppni, þá er ég að horfa á stóru bankana, það eru vissulega fleiri fjármálafyrirtæki í landinu. Það hafa komið fram sjónarmið um að við ættum að skoða sameiningu á bönkunum, sem flestir mundu telja í dag að væri andstætt samkeppnislögunum, en við höfum enn ekki stigið það skref. Og í augnablikinu erum við að einblína á að losa um eignarhald ríkisins og hitt verður áfram í skoðun. Við höfum engin erindi um að taka þetta til skoðunar. Ég vísa til Hvítbókarinnar, sem segir að lögin gera ráð fyrir því að næstu skref í þessu máli verði að frumkvæði Bankasýslunnar að koma með tillögur til ríkisstjórnarinnar. En ég er vel til í að taka þátt í umræðu um það hvort það séu rök fyrir því að stærri eining geti mögulega skilað meiri hagkvæmni. En þá erum við alltaf með á hinni vogarskálinni þessi samkeppnislegu sjónarmið og það er erfitt til þess að hugsa að það fækki enn frekar þeim sem taka þátt í að veita þessa þjónustu á Íslandi í dag. Og maður hefur auðvitað áhyggjur af þeirri samkeppnisstöðu sem þar kemur upp. Og það er það sem vegur á móti hagkvæmnirökunum.”