Breyttar forsendur í efnahagslífi hafa gert það að verkum að ríkisstjórnin telur nú ástæðu til að skera verulega niður og gera breytingar á fjármálaáætlun fyrir árin 2020 til 2024.
Á vef mbl.is kemur fram að í tillögu að breyttri fjármálaáætlun fyrir þessi ár er gert ráð fyrir 7,9 milljörðum minna framlagi vegna örorku og málefna fatlaðs fólks.
Þá verða útgjöld ríkissjóðs um 13 milljörðum minni árin 2020 til 2024 en fyrri áætlun gerði ráð fyrir. Fjármálaáætlun liggur þó ekki enn fyrir og eru þingmenn orðnir nokkuð þreyttir á að bíða eftir að fá hana tilbúna í hendurnar.
Má gera fastlega ráð fyrir að verði þessi mikli niðurskurður að veruleika, til þeirra sem lægstar tekjur hafa í samfélaginu, verði hann afar umdeildur og fari illa í marga.